Miðjustútar í kör
Við smíðum miðjustúta í kör fyrir vatns- og fiskflutning í ýmsum stærðum og gerðum. Hentar vel fyrir fiskeldisþró og flutningsbíla.
Trefjarör með flönsum
Sérsmíðuð og stöðluð trefjarör með flönsum í þvermálinu 100 til 1500 mm. Við smíðum rör í ýmsum lengdum og þykktum eftir þörfum viðskiptavinar.
Rör fyrir heitt og kalt vatn
Við flytjum inn, smíðum og setjum saman trefjaplasrör í ýmsum stærðum og gerðum fyrir heitt og kalt vatn. Kjörið fyrir hitaveitu og kalt vatn í stórum mannvirkjum.
Trefjaplastbrýr
Við smíðum trefjaplastbrýr af ýmsum stærðum og gerðum. Léttar og burðarmiklar — allt að 35 metra langar án miðjustuðnings. Ganga vel í öllum umhverfum þar sem stál myndi ryðga.
Prófílar, pallar, stigar og gólf
Við hönnunum, smíðum og flytjum inn trefjaplastprófíla sem notaðir eru í palla, stiga og gólf. Tilvalin lausn fyrir sjávarútveg, iðnað og fiskeldi þar sem þol gegn tæringu skiptir máli.
Tankar og box
Við smíðum ýmiskonar tanka og box úr trefjaplasti: vatnstanka, olíutanka, dauðfiskabox og slush box. Allar stærðir mögulegar eftir pöntun.
Mót og sérsmíði
Við smíðum öll okkar mót innanhús með yfir 40 ára reynslu í mótagerð. Við framleiðum opin mót, vacuum mót, flex/silicon mót og RTM mót. Þessari reynslu beitum við í sérsniðnar lausnir fyrir viðskiptavini.
Bátar og skip
ELV ehf (áður þekkt sem Dug ehf) hefur komið að smíði og breytingum á bátum og skipum úr trefjaplasti, þar á meðal stærsta skipi sem hafin hefur verið smíði á á Íslandi — 24 metra langt og 8 metra breitt.
Hús, húseiningar og skápar
Við smíðum ýmiskonar hús, húseiningar og skápa úr trefjaplasti með einangrun. Hentar vel þar sem þyngd og tæring eru vandamál.
Pallhýsi, tjaldvagnar og hestakerrur
Við framleiðum pallhýsi, tjaldvagna og hestakerrur úr trefjaplasti. Létt, sterk og þolnar íslenska veðráttu.
Þarftu sérsmíðaða lausn?
Segðu okkur frá verkefninu þínu og við gefum þér tilboð.